laugardagur, 4. júlí 2009

Mývatnssveitin er æði :D

Jæja fólk, þá er ég komin í sveitasæluna.... ákvað bara í vikunni að skella mér norður, var orðin svo leið á því að hanga bara ein heima á daginn og láta mér leiðast. Fékk far með Kristbjörgu á miðvikudaginn til Akureyrar og Mamma, Ari og Ásgeir Örn komu svo bara til Ak og sóttu mig... Ótrúlega gaman að sjá þau og þá sérstaklega hann Ásgeir minn, var farin að sakna hans soltið mikið :D Hér er búið að vera mjög gott veður og er hitinn búinn að vera sl. daga hátt í 27 stig og sólin lét sig ekki vanta með því... og er ég því bara búin að vera mikið inni við, ég þoli ekki alveg svona mikinn hita.... Í dag er aðeins minni hiti eða 18 stig og sól og ég gat aðeins setið úti á palli en það var ekki langur tími hahahahah :D , bjargaði því aðeins að það er svolítill vindur þannig að það kældi aðeins niður í manni :) Mamma er hérna í óða önn að háþrýstiþvo húsið og búa það undir málningu, ótrúlega dugleg kellingin :D Ásgeir Örn leikur sér bara úti svo að ég og Amma erum hérna heima við, hún að þrífa eitthvað og ég að gera bara ekki neitt hahah, en ég hef félagsskapinn sem er annað en ég hafði heima hjá mér á daginn.... Bara gott :=)

Guðni minn bara heima með stelpurnar sínar og er svo að vinna á virku dögunum, en hann hefur ekkert síður gott af því að losna aðeins við mig, var að verða frekar leið og pirruð hahah :)

Meðgangan gengur bara svona ágætlega, er gengin 33 vikur á morgun, er eins og ég hef verið, mikill þristingur og hún lætur illa... svo ég passa mig bara á því að gera ekki neitt svo að hún komi nú ekki strax...... :D

Hef svosem ekkert mikið að segja, langaði bara svona aðeins til að henda inn svo þið hafið eitthvað að lesa um hahahahahah :D :D
Þið megið alveg endilega kvitta svo ég sjái hverjir eru að lesa :D :D

En þangað til næst, hafið það gott :D

Elísa Dagmar

8 ummæli:

ThP sagði...

Gangi þér vel Elísa :) ég kannski sé þig í sveitinni á næstu dögum..
kv. þuríðurp

Elísa Dagmar sagði...

Takk fyrir Þuríður mín... Já það er sko vel skoðandi, ertu á leið í sveitina??

ThP sagði...

jáh, við erum nú meira og minna í sveit, verðum samt alla næstu helgi þá verður Benni að vinna og ég heima í austurhlíð á barnavakt :)

Elísa Dagmar sagði...

Okei frábært... verð að koma og kíkja á fallega prinsinn... :D

hilda sagði...

æði...ég ætla að kíkja á þig á næstu dögum sæta mín;)

Unknown sagði...

Góða skemmtun í sveitinni og farðu extra vel með þig/ykkur;)

Alma sagði...

Jamm Mývatnssveitin er æði allan sólahringinn! Það eru orð með sönnu :) En heyrðu þetta verður annaðhvort 6. ágúst (Fullt tung), 20. ágúst (Nýtt tugl), eða 4. sept (Fullt tugl). Veit að þú nennir alls ekki að bíða þangað til 4. sept sem er 11 dagar framyfir:) Þannig að ég held 20. ágúst, ég veðja á þann dag. Hafðu það extra gott í sveitinni okkar og njóttu þess í botn. kiss kiss

Elísa Dagmar sagði...

Takk fyrir allar :) Mér líst best á 6 ágúst.... stefnum á þann daginn bara... :=) 20 ágúst er ekki nógu gott, Inga Birna á afmæli þann dag og það er alveg lágmark að eiga sinn afmælisdag í friði hahahahahah er það ekki málið :)