mánudagur, 30. mars 2009

19 vikur í dag :=)

Jæja hvað segiði svo???

Hér er bara gott að frétta, ég er gengin 19 vikur í dag, þetta líður bara ussss :=) Erum að fara í 20 vikna sónarinn 7 apríl, þá kemur í ljós hvaða kyn þetta er, er orðin svo forvitin að ég er alveg að farast... hahahahaha :=)

Mamma og Pétur bróðir komu í bæinn á fimmtudaginn :=) , fórum við mæðgur að snúast á föstudaginn, keyptum efni í egg kjólinn sem hún ætar að vera svo yndisleg að sauma á mig... :=) Komu svo stelpurnar til okkar á föstudaginn og mamma fór suður til Ömmu um kvöldið... Laugardagurinn var bara fínn, fórum aðeins í Ikea og Kolaportið bara nice, nema það að Rakel var orðin ansi slöpp þegar við komum heim og sofnaði fyrir kvöldmat og komin með hita, ég bakaði pizzu sem var ekkert smá góð eins og venjulega ... Aníta fór svo að verða ansi slöpp eftir kvöldmat og var svo komin með hita þegar hún var að fara að sofa... var ekki mikið sofið þá nótt þar sem Rakel vaknaði með mjög stuttu millibili.. Sunnudagurinn var svo bara þannig, Rakel fárveik og Aníta líka, haldiði að Guðni hafi svo ekki bara farið að æla ofaná allt saman.. Ég var að fara í fermingarveislu í Njarðvík, þannig að ég fór bara með stelpurnar til mömmu sinnar, þar sem að Guðni var enginn maður til að sinna þeim :( En hann Leó Páll frændi minn var að fermast og við Ásgeir Örn fórum í hana, var það bara gaman.. komum svo heim um kaffi og Guðni allur að koma til... Svo var bara glápt á Tv og ég heklaði eins og enginn væri morgundagurinn, ekkert smá dugleg :=)
Svo er það bara dagurinn í dag, kallinn fór nú í vinnu og Ásgeir í skóla, ég skrapp og stússaðist aðeins með Thelmu eftir hádegið og kom svo bara heim og er bara hérna í sófnum í makindum .... :)
Mamma ætlar svo að koma til okkar á eftir og ætlar að gista og bruna svo norður á morgun, þar sem að veðrið er búið að vera svo vont fyrir norðan að hún ákvað að vera ekkert að fara fyrr en þá....

En já já , það er svosem ekkert merkilegt að gerast hjá okkur, erum bara spennt fyrir sónarnum og bíðum spennt :=)

En já ég er búin að koma allavegana með smá...

Kem með meira síða...

Þangað til, hafið það gott :=)

Elísa Dagmar

fimmtudagur, 19. mars 2009

17 vikur og 4 dagar í dag....

Jæja fólk hvað er að frétta???? hjá mér er bara gott að frétta, ekk mikið en gott :=)

Við fórum í hjartasónar á þriðjudaginn sl. og gékk það ROSALEGA vel, það er alveg heilt hjartað og var ég ekkert smá glöð og er því þessi meðganga að verða mun auðveldari en hún hefur verið, hún er búin að vera soltið mikið stress um að allt sé í lagi.......


Svona myndarlega er ég orðin, ekki alveg nógu góð mynd en... :=)

En já ég hef svosem ekki mikið að segja...

Stelpurnar voru hjá okkur um helgina og var mikið fjör.. Fórum á hestasýningu á sunnudaginn og skemmum okkur alveg konunglega:=)

Annars er bara búið að vera rólegt hjá manni.. mikið af fermingum á næstunni ( nóg að borða hahaha )...

Nenni eigilega ekki að blogga meira í bili...

Þangað til næst, hafið það gott..

Elísa Dagmar

fimmtudagur, 5. mars 2009

Mikill vetur og Sveitasælan :=)

Jæja fólks, hvað er að fréttta, ég veit að ég er búin að vera hundlöt að blogga, en málið er bara það að tölvan min heima er bara eigilega ónýt og frís hún eins og henni sé borgað fyrir það svo að ég hef ekki getað bloggað þar, svo núna ætla ég að blogga smá þar sem að mamma á þessa fínu tölvu.... :=)

Það er svosem ekkert mikið búið að gerast hjá mér, Guðni hélt uppá afmælið sitt með Sonju um daginn eða þá var það 21 feb minnir mig, það var bara hið fínasta partý sem haldið var heima hjá Ragga og Sonju... Var ég bara hin sprækasta og var alveg til kl.2 þá eigilega nennti ég ekki meir, og fór heim að sofa, og Guðni minn skemmti sér vel með vinum sínum :=)

Svo er bara búið að vera voða rólegt hjá manni, Guðni alltaf að vinna og fer svo beint i ræktina og er því aldrei kominn heim fyrr en um 9, þannig að ég og Ásgeir erum bara heima að dúlla okkur :=)
Stelpurnar komu svo sl. helgi, en Aníta stoppaði ekki lengi þar sem hún varð að fá að vera hjá vínkonu sinni sem býr í kópavogi, þannig að Rakel var bara ein hjá okkur og var bara gaman hjá okkur...Ásgeir Örn fór og heimsótti pabba sinn (Hinrik) á föstudaginn og borðaði hjá þeim. Þannig að við vorum bara 3 af 5 á föstudagskvöldið, en Ásgeir kom nú heim um hálf 10 :=) fórum í bíltúr á laugardaginn og fengum okkur ís og svo auðvitað aðeins nammi, enda nammidagur... :=) Bökuðum pizzu um kvöldið og skemmtum okkur bara vel... :=)
Sunnudagurinn var bara rólegur, enda ég að pakka niður fyrir okkur Ásgeir, þar sem að við ætluðum að kíkja í sveitina til mömmu ... Fórum við í flug kl.3 og vorum því mætt til Akureyrar fyrir kl.4 í sól og blíðu :=) Mamma kom og sótti okkur og við keyrðum strákana beint í bíó, og við mæðgur kíktum í búðir og fengum okkur smá í gogginn á kaffihúsi, voða notarlegt :=) Svo var bara brunað í sveitina.... :=)

Hér er bara búið að vera mjög notarlegt, búið að vera hundleiðinlegt veður en maður lætur það ekkert á sig fá, gerir bara eitthvað inni í staðinn :=) Búin að sjóða ansi oft silung og eta og get ég ekki kvartað yfir því sko, enda þykir mér hann góður og fæ ég hann ekki oft :=)
Við mamma búnar að fara yfir allt barnadótið og fötin sem ég átti hér uppá lofti og henda því sem ekki er nothæft, þvo og gera klárt... Ætla ég ekkert að fara með það heim núna, enda er ég bara fljúgandi, en við Hjónin komum hér í maí til að vera í sauðburði og þá verður þetta dót allt saman tekið.... :=)

Langaði mig til að segja frá því að sl. Laugardag eða þá 28 febrúar hefði hún Lilja Sóley orðið 4 ára... Þetta er fljótt að líða... Keypti ég því gervi Liljur á Akureyri og er búin að fara með þær í garðinn... :=) Þurfti nú að moka krossinn hennar upp, því hann var á kafi í snjó, ekkert smá mikill snjór......

Meðgangan gengur bara vel, ég er alveg hætt að vera svona veik eins og ég var, segi nú bara guð sé lof, því að mér var óglatt allann sólarhringinn og ældi ekki neitt þannig að þetta er ekki búin að vera skemmtileg byrjun.... núna er ég bara öll að koma til og líður með bara vel.. Stækka mjög hratt, sem ég er vön.... Veit ekki hvernig ég verð miðað við hvað ég er orðin sver nú þegar.... en já já ég er víst bara svona og lítið við því að gera, vona bara að ég verði ekki OF stór ... hahahaha :=) ég er komin núna tæpar 16 vikur og er ég farin að finna miklar fiðrilda hreifingar sem er bara kósý.... ég verð farin að finna góð spörk áður en ég veit af... :=)

Jæja er ég ekki bar búin að vera dugleg að blogga núna.... ussss allavegana nenni ég ekki meir í bili....

Þangað til næst, hafið það gott.... :=)

Elísa Dagmar