mánudagur, 2. febrúar 2009

Hvað er að frétta fólk.......

Hjá mér er bara allt ágætt að frétta.... :=)

Helgina var bara fín, byrjaði á því að útrétta alveg helling á föstudaginn og svo komu stelpurnar með rútunni rúmlega 5 og við náðum í Guðna og fórum heim í rólegheit.... :=)

Laugardagurinn var meira um að vera, fórum og skoðuðum aðeins útsölurnar sem mér finnst bara ekkert vera miklar útsölur, fór á lagermarkaðinn hjá Zo-on og ætlaði að athuga með úlpu á Ásgeir Örn en hún kostaði á útsölu 9000 og mér finnst það bara ógeðslega mikið á útsölu, verð bara að segja það... Þaðan fórum við í intersport því Guðna vantaði æfingaskó, og hvað haldiði að svoleiðis skór kosti í dag??? 24000 kr... Er ekki allt í lagi eða... ég átti bara ekki orð... Funndum ágætis skó, á 8500 og komum okkur út..... Alveg ótrúlega verðið á öllu í dag,.. Held ég fari bara ekkert meira í búðir á næstunni, ég er ennþá að jafna mig á þessu öllu saman.....
En já þegar það var búið fórum við í 5 ára afmæli hjá honum Sölva, syni hans Magga vinar minns og skemmtum við okkur bara vel.... Svo var bara búið að ákveða videokvöld og rólegheit sem var bara ljúft... :=)
Stelpurnar fóru svo með rútunni í gær og við orðin aftur 3 í koti :=)

Svo er maður bara endalaust að líta í kringum sig og reyna að fá eitthvað að gera, sem er ekki roslega mikið framboð af vinnu núna, en vonum að það komi allt með góðaloftinu og hækkandi sól :=) hahahaha

Svo var ég svona að velta því fyrir mér að hafa smá könnun núna.... bara svona fyrir mig....
og langar mig að byðja alla þá sem skoða bloggið mitt og geta kvittað, um að kvitta núna fyrir komuna eða segja eitthvað annað ef þeir vilja, því ég hef það svona á tilfinningunni að ég sé bara að blogga fyrir Ölmu og Hildu... Er það rétt hjá mér eða????? Ef svo er þá er ég bara ekkert viss um að ég nenni að standa í þessu sko........ En endilega leiðréttið mig ef ég hef rangt fyrir mér og kvittið..... :=)

En já ég hef svosem ekkert meira að segja í bili, langaði aðalega að koma með þessa könnun og setti svona smá pistil þar á undan.... :=)

En þangað til næst, hafið það gott :=)

Elísa Dagmar

10 ummæli:

Alma sagði...

Ég les bloggið þitt elskan mín og mér finnst þú alveg getað bloggað bara fyrir mig og Hildu :) En helv...verðið á öllu núna er vængefið! alveg óþolandi!¨En já ég hef oft sagt það að þetta kemur alls saman með hækkandi sól elskan

Elísa Dagmar sagði...

Já já ég hef fulla trú á því að sólin reddi þessu... :=) En já það er víst enginn annar sem les bloggið mitt nema jú hún Hugrún mín, sem kommentaði bara á fésbók í staðin þar sem hún gat ekki kommentað hér ahahaha :=)

Unknown sagði...

Sæl Elísa.
Vissi reyndar ekki að þú værir að blogga, en rambaði inná þessa síðu á net flakki mínu;)
Vildi nú láta vita af mér;) Það er svo gaman að geta fylgst aðeins með þér og þínum þegar maður er svona langt í burtu;)
Leiðinlegt að þú sért ekki með vinnu, vona að þú fáir nú eitthvað að gera, það er alveg ömurlegt að vera ekki með vinnu á þessum óvissutímum.
Ég á nú eftir að kíkja oftar hérna inn;)
Hafðu það gott og ég bið að heilsa;)
Kveðja Ólöf

Elísa Dagmar sagði...

Takk Ólöf mín að kíkja við... Já þetta getur verið frekar einmannalegt og þreitandi að gera ekki neitt... En það lagast með hækkandi sól... hahahahhahaha :=)

Unknown sagði...

Já ég hugsa það;)
Ég allavega get varla beðið eftir sumrinu;)
Það verður ekkert mál fyrir þig að finna þér eitthvað að gera þegar nálgast sumar.

ThP sagði...

Ég dett stundum hérna inn, nenni sjaldan að kvitta samt :)

Bestu kveðjur,
ÞuríðurP

hilda sagði...

Hæ ljúfan...ég kíki á hverjum EINASTA degi og ég held barasta að ég nenni alveg að kvitta...það ætti nú ekki að vera mikið mál fyrst maður á annað borð nennir að lesa;) enda finnst mér gaman að lesa hjá þér ...hvursu innihaldslítið þér finnst þú skrifa um....en...já ég fer bara ekki í búðir lengur...liggur við...það er allt sjúklega dýrt...en Elísa mín...ég segi við þig eins og ég sagði við Ölmu...svo langt síðan ég sá þig og ég er bara farin að sakna þín;) vonandi sjáumst við soon...kossar og knús

Elísa Dagmar sagði...

Já ólöf þetta kemur allt með sólinni hahaha :=) Takk Þuríður mín að kíkja :=) Og Hilda mín, maður verður bara að segja það sama, of langt síðan síðast.... verðum að fara að gera eitthvað í þessu sko.... :=) En takk fyrir að kvitta elskan.... :=)

Unknown sagði...

Sek...um að kvitta ekki *sorry* ég er bara svo oft að flýta mér á feisbúkk sko ;) hehe... Ég skal bæta mig í kvittinu ég lofa ;)

Elísa Dagmar sagði...

Takk elskan :=)