þriðjudagur, 7. október 2008

Allt eða ekkert!!!!!

Jæja þá er helgin og sonna yfirstaðin... Hún var bæði góð og mjög slæm hjá mér... :S

Við drifum okkur fjölskyldan út að labba á laugardaginn með Aþenu, fyrsti göngutúrinn hennar svona að ráði, en langur var hann nú ekki, ég gat nú ekki gengið langt né hratt... en gott varð það mmmmm...
Svo þegar leið á kvöldið, fór Guðni minn í pool með Ragga og Thelma, Vésteinn, Valdimar, Ásdís, Erna, Þórey og vínkona Ásdísar komu til mín og við tókum nýja Partý og Co spilið, ekkert smá gaman hjá okkur, skemmtilegt spil, verð að segja það... :D Guðni kom svo heim og við fórum að sofa....
Vaknaði daginn eftir svona hálf þunn en góð samt.. Fór svo að fá smá höfuðverk og ákvað að leggja mig aðeins, nei nei ég gat ekki sofnað heldur magnaðist bara höfuðverkurinn og varð svo geðveikur að ég hélt ég væri hreinlega að deyja, byrjaði mér þá að verða óglatt og varð líðan mín hræðile, gat ekki talað, mátti enginn tala við mig, því það gnísti bara í höfðinu á mér, Drífa kom heim og Guðni fór að kaupa stíla og fá svefntöflu, stílarnir virkuðu ekki mikið strax og ég ælið öllu sem ég lét inn fyrir varirnar, og líka svefntöflunni svo hún kom ekki að góðum notum... Jésussssss minn, ég var bara rugluð og með óráði.. Held að mér hafi aldrei liðið svona illa... Náði að sofa svo og vaknaði svona ágæt í gær morgun... úffff ég vona að mér eigi ALDREI eftir að líða svona illa aftur, þetta var hræðilegt.......
Valdimar vakti mig í gær með því að hringja og segjast koma til mín, plataði ég hann þá til að kaupa eitthvað handa mér að borða þar sem að ég hefði ekki borðað síðan á laugardaginn... orðin frekar máttvana og svöng... Kallinn kom með borgara :D :D Bara gottttt :D Sat hann svo hjá mér fram eftir degi og við gláptum á TV, bara notarlegt.... :D

Guðni kom svo heim úr vinnu rúmlega 6 og hélt áfram að stjana við konuna sína þessi elska :D :#:#

Svo er gítartími hjá Ásgeiri í kvöld og ætla ég að fara með honum, það er svo gaman að heyra þegar hann er að læra... hann er svo mikill spekingur hehehe :D

En já já nóg um það.... Þetta er orðið fínt í dag og þangað til næst hafið það gott :# :#

Elísa Dagmar

2 ummæli:

Alma sagði...

Ja hérna hér þetta er aldeilis hvað gerðist eiginlega?
En já væri alveg til í að heyra í litla kút spila á gítarinn heeh örugglega fyndið
Sjáumst í kvöld sæta mín XXX

Elísa Dagmar sagði...

Veit það ekki alveg .. Örugglega fegnið einhverja eitrun eða ég bara hreinlega veit það ekki... Já verður að heyra í honum... Sjáumst í kvöld :D :D :D