sunnudagur, 26. október 2008

Hvað er málið með þessa leti???????

Halló gott fólk... ég veit að ég er ekki dugleg að blogga, það er einfaldlega vegna þess að tölvan mín er að gefa upp öndina, þannig að ég hef ekki nennt að hamast við það að blogga... En nú kemur samt smá....

Alltaf sama að frétta hér samt, barnahelgi að enda núna og vorum við að koma heim frá því að fara með stelpurnar í rútuna... þannig að það er orðið rólegt hér á bæ....

Ásgeir Örn hélt uppá afmælið sitt 18. okt sl.. og var hér heljarinnar veisla, margir pakkar og mikið etið... :D :D Fékk gaurinn gítar frá Drífu frænku og var ekki lítið montinn þegar hann fór svo í gítartímann með nýja gítarinn.... :D

Heilsan mín, er orðin góð og er ég farin að geta gert allar dagsins venjur :D :D sem betur fer, orðin þreitt á því að vera með hálfa heilsu hehehehe :D :D

Gegnur vel í vinunni, reyndar búið að vera smá basl, þar sem að ég er á mjög lélegum trailer og búið að snjóa mikið síðustu daga, þannig að ég er ekki búin að vinna mikið, vegna hálku og þessi bíll minn spólar bara á jafnsléttu... algert drasl.... En það fer nú að lagast vonanadi... Eða ég skipti bara um bíl, sem ég mun gera þegar veturinn er alveg genginn í garð... nenni nú ekki að gera mig að fífli á öllum ljósum , gatnarmótum og hringtorgum, nei takkkkkk heheheh :D

Svo er maður bara farin að hugsa mikið til Jólanna þar sem að það verður farið í sveitina góðu... Guðni alveg farinn að telja niður dagana, vantar eitthvað að komast í skítagallann held ég... :D heheh... Það verður SVO gott að komast í sveitina, ekki búin að koma heim síðan í júlí... Alls ekki gott....

Svo er bara að taka við önnur vinnuvika, og það verður fróðlegt hvernig hún mun ganga í frostinu :D :D EN já já það er svo sem ekki mikið meira sem ég hef að segja sko... Langaði bara aðeins að henda hér inn svo að þið haldið ekki að ég sé bara dauð... hehehehe

Kem með meira fljótlega... En þangað til Hafið það gott :D

Elísa Dagmar

3 ummæli:

Jón Sindri sagði...

Hæhæ Elísa frænka :-)

Rakst fyrir tilviljun á þetta nýja blogg þitt. Gaman að sjá að þú ert kát og hress !

kveðjur úr éljaganginum fyrir norðan :-)

Jón Sindri

Jón Sindri sagði...

Já og til hamingju með giftinguna!

Elísa Dagmar sagði...

Halló frændi.... Og takk fyrir það :D
Hafðu það gott í éljarganginum og MUNDU að borða grænmetið þitt :):):)